SOS Myndir
Ljósmyndun neyðaraðgerða - Heimildaljósmyndun á störfum neyðaraðila
Renndu niður síðuna ef þú vilt vita meira.
SOS Myndir
Ljósmyndun neyðaraðgerða - Heimildaljósmyndun á störfum neyðaraðila
Renndu niður síðuna ef þú vilt vita meira.
Gaman að sjá þig, takk fyrir að líta við. Ég heiti Siggi og er ljósmyndari að mennt og atvinnu og björgunarsveitarmaður í hjartanu. Með yfir þriggja áratuga reynslu í leit og björgun og á annann áratug sem ljósmyndari að atvinnu sérhæfi ég mig í að ljósmynda störf neyðaraðila á Íslandi og raunar erlendis þegar tækifæri gefast. Þessi vefur heldur utan um þá sérhæfingu og verkefni því tengt. Þú getur kynnst mér betur á þeim hluta þessarrar síðu sem fjallar um mig og minn bakgrunn
Skoðaðu ljósmyndasafnið
Á yfir 10 ára tímabili hefur safnast umtalsvert safn ljósmynda tengt leit, björgun og neyðarstörfum. Stór hluti þessa safns er aðgengilegur á myndavefnum mínum.
Skoðaðu ljósmyndasafnið
Á yfir 10 ára tímabili hefur safnast umtalsvert safn ljósmynda tengt leit, björgun og neyðarstörfum. Stór hluti þessa safns er aðgengilegur á myndavefnum mínum.
Að ljósmynda neyð
Eins og gefur að skilja er ekk alltaf sjálfsagt að elta fólk með myndavél á þeirra viðkvæmustu stundum þegar neyð ber að garði. En það eru margar leiðir til að gera það og jafnframt er tilgangurinn margþættur.

“„Í þessu riti sjáum við ljóslifandi myndir af samstöðu og seiglu, hugviti og hugrekki. Fagnaðarefni er að sagan var fönguð á þennan hátt, okkar kynslóð og þeim sem á eftir koma til fróðleiks, upplýsingar og áminningar.“
”
Frá því í janúar 2020 hef ég fylgt eftir og skrásett jarðhræringarnar á Reykjanesi og áhrif þeirra á fólk, byggð og náttúru. Þann 12. október kemur út fyrsta ljósmyndabókin mín þar sem gefur að líta tæpar 500 ljósmyndir á 416 síðum ásamt textum sem lísa þessari sögu frá því í janúar 2020 fram á haust 2024. Bókin verður á sérstöku forsöluverði fram að útgáfu og hana má nálgast hér.